Taugafræðilegur fjölbreytileiki – ADHD og einhverfa á vinnustað
Fjölbreytt hugsun er styrkur – þegar vinnustaðurinn kann að taka á móti hennii.
Fólk hugsar, skynjar og vinnur úr upplýsingum á ólíkan hátt. ADHD og einhverfa eru dæmi um taugafræðilegan fjölbreytileika sem getur birst með ýmsum hætti í daglegu starfi. Þekking og skilningur á þessum fjölbreytileika draga úr misskilningi, hjálpa styrkleikum að njóta sín og stuðla að betra vinnuumhverfi fyrir alla.
Meðal efnis:
- Taugafræðilegur fjölbreytileiki á vinnustað
- Birtingarmyndir í vinnuumhverfi, skynúrvinnsla, einbeiting, skipulag og samskipti
- Styrkleikar sem fylgja ólíkum taugafræðilegum eiginleikum
- Hagnýtar leiðir til að mæta ólíkum þörfum í vinnuumhverfinu
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Stjórnendur ✓ Mannauðsfólk ✓ Starfsfólk
45 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams