Sálfélagslegt og sálrænt öryggi á vinnustað
Traust er grunnurinn að öruggu vinnuumhverfi.
Þegar fólk upplifir öryggi þorir það að tjá sig, spyrja spurninga og benda á það sem betur má fara. Það skilar sér í aukinni vellíðan, betra samstarfi og meiri starfsánægju. Í fræðslunni er farið yfir muninn á sálfélagslegu og sálrænu öryggi, hvaða þættir grafa undan þeim og hvað þarf til að byggja þau upp í vinnuumhverfinu.
Meðal efnis:
- Munurinn á sálfélagslegu og sálrænu öryggi
- Sálfélagslegir áhættu- og verndandi þættir
- Merki um skort á sálfélagslegu og sálrænu öryggi
- Hvernig efla má öryggi, þátttöku og uppbyggileg samskipti á vinnustað
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Stjórnendur ✓ Mannauðsfólk ✓ Starfsfólk
45 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams