Sálræn skyndihjálp fyrir stjórnendur á viðkvæmum tímum
Þegar á reynir geta fyrstu viðbrögð stjórnenda skipt sköpum fyrir líðan og öryggi starfsfólks
Við verjum stórum hluta ævinnar á vinnustaðnum en þar reynir stundum á. Með þjálfun í sálrænni skyndihjálp læra stjórnendur að veita viðeigandi stuðning, efla bjargráð og stuðla að heilbrigðri úrvinnslu eftir erfiða atburði. Þekkingin nýtist jafnt í starfi sem einkalífi.
Meðal efnis:
- Hvað er sálræn skyndihjálp og hvenær á hún við?
- Fyrstu viðbrögð stjórnenda eftir erfiða atburði
- Að veita stuðning án þess að taka að sér meðferðarhlutverk
- Bjargráð og heilbrigð úrvinnsla hjá starfsfólki og stjórnandanum sjálfum
- Hvenær og hvert er rétt að vísa málum áfram
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Stjórnendur ✓ Mannauðsfólk
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams