Bjargráð í lífskreppu

Þegar lífið tekur óvænta stefnu duga venjuleg bjargráð ekki alltaf til. 

Lífskreppur eru eðlilegur hluti af lífinu en geta haft tímabundin áhrif á líðan, samskipti og starfsgetu. Í fræðslunni er farið yfir algeng viðbrögð í lífskreppum, hvaða bjargráð styðja við heilbrigða úrvinnslu og hvernig samstarfsfólk getur sýnt stuðning þegar vinnufélagi gengur í gegnum erfitt tímabil. Einnig er fjallað um hvernig skapa má vinnuumhverfi sem einkennist af nærgætni og skilningi. 

Meðal efnis: 

  • Algengar lífskreppur og áhrif þeirra á líðan og starfsgetu 
  • Heilbrigð bjargráð og leiðir til úrvinnslu 
  • Uppbyggileg samtöl við vinnufélaga í erfiðri stöðu 
  • Stuðningur og nærgætni á vinnustað 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Starfsfólk   ✓ Mannauðsfólk 

45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams