Streita - Fræðsla fyrir starfsfólk
Styrkur eða stórhættulegt fyrirbæri?
Streitukerfið gagnast í margvíslegum aðstæðum en getur unnið gegn okkur ef við þekkjum það ekki. Í fræðslunni lærir starfsfólk að þekkja og nýta eigið streitukerfi til góðra verka, greina streituvalda og beita aðferðum sem efla sefkerfið, mótvægið við daglegri streitu.
Meðal efnis:
- Þekkir þú streitukerfið þitt?
- Hverjir eru þínir streituvaldar?
- Hvenær er streita hjálpleg og hvenær ekki?
- Einkennamynd streitu
- Aðferðir til að efla sefkerfið
Hentar sérstaklega þegar:
- Álag hefur aukist eða skipulagsbreytingar standa yfir
- Fjarvistir eða einkenni streitu fara vaxandi
- Vinnustaðurinn vill vinna markvisst að forvörnum
60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams · Íslenska og enska