EKKO fræðsla fyrir starfsfólk
EKKO stefna skilar aðeins árangri ef starfsfólk þekkir hana og treystir henni
Fræðslan stuðlar að sameiginlegum skilningi starfsfólks á hugtökum og verkferlum í EKKO málum þannig að stefna vinnustaðarins endurspeglist í daglegum starfsháttum. Margir vinnustaðir bjóða fræðsluna árlega til að viðhalda sameiginlegri þekkingu og tryggja að nýtt starfsfólk fái sama grunn.
Meðal efnis:
- Tilgangur stefnu og skilgreiningar
- Áhættuþættir, birtingarmyndir og þróun EKKO mála
- Afleiðingar EKKO
- Rétt viðbrögð; hvernig mætum við EKKO á vinnustað?
- Forvarnir; hvernig komum við í veg fyrir óheilbrigð samskipti?
Hentar sérstaklega þegar:
- Ný eða uppfærð EKKO stefna er kynnt
- Vinnustaðurinn vill byggja upp og tryggja sameiginlegan skilning
- Sem hluti af árlegri forvarnaáætlun
60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams · Íslenska og enska