EKKO stjórnendaþjálfun – þekking og fyrstu viðbrögð
Þegar EKKO mál koma upp þurfa stjórnendur að vita hvernig best er að bregðast við
Vinnustofan eflir, þjálfar og viðheldur færni stjórnenda til að bregðast faglega og af öryggi við EKKO málum. Farið er yfir algengar birtingarmyndir EKKO á vinnustað, viðeigandi verkferla og skilgreiningar samkvæmt reglugerð. Að auki fá stjórnendur þjálfun í fyrstu viðbrögðum, þar á meðal sálrænni skyndihjálp, og svo er farið yfir algeng viðbrögð og einkenni þeirra sem hafa upplifað EKKO.
Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur:
- Gert sér skýra grein fyrir ábyrgð og hlutverki sínu við að stuðla að sálfélagslegu öryggi á vinnustað
- Þekkt muninn á einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi
- Stuðlað að forvörnum gegn EKKO á vinnustað
- Gripið til viðeigandi fyrstu viðbragða þegar mál koma upp
Hentar sérstaklega þegar:
- Stjórnendur þurfa að þekkja skyldur sínar samkvæmt reglugerð
- Mál hafa komið upp eða álitamál eru til staðar
- Verið er að innleiða EKKO stefnu og verkferla
- Sem hluti af reglulegri fræðslu og árlegri forvarnaáætlun
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Stjórnendur ✓ Mannauðsfólk
2 eða 3 klst. vinnustofa · Staðfræðsla eða á Teams · Íslenska og enska