Fjarvistir II – Hlutverk og ábyrgð stjórnenda

Traust og eftirfylgni ráða úrslitum um farsæla endurkomu til vinnu 

Fjallað er um lykilhlutverk stjórnenda í fjarvistamálum: samskipti, stuðning og eftirfylgni. Unnið er með hvernig stjórnendur skapa traust, bregðast við á faglegan hátt og stuðla að farsælli endurkomu starfsfólks. 

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur: 

  • Gert sér skýra grein fyrir hlutverki sínu og ábyrgð í fjarvistamálum 
  • Átt traust og fagleg samtöl við starfsfólk um fjarvistir 
  • Stutt starfsfólk og fylgt málum eftir í átt að farsælli endurkomu 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Stjórnendur   ✓ Mannauðsfólk 

90 mín. vinnustofa (seinni hluti af tveimur) · Staðfræðsla eða á Teams