Jákvætt hugarfar
Styrkleikarnir okkar eru vannýtt auðlind.
Hugarfar mótar hvernig við mætum daglegum áskorunum og hvernig okkur líður í starfi og einkalífi. Í fræðslunni er farið yfir helstu hugmyndir jákvæðrar sálfræði og hagnýt verkfæri kynnt sem hjálpa fólki að koma auga á eigin styrkleika og nýta þá til að efla vellíðan og þrautseigju. Jákvætt hugarfar snýst ekki um að líta fram hjá erfiðleikum heldur byggja á því sem virkar.
Meðal efnis:
- Helstu hugmyndir jákvæðrar sálfræði
- Að þekkja og nýta eigin styrkleika
- Merking, tilgangur og verndandi þættir
- Hagnýt verkfæri sem hægt er að nota daglega
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams