Framlínustörf – krefjandi samskipti og eigin heilsa
Þau sem standa í framlínunni þurfa sjálf öflugan stuðningg.
Framlínustörf fela oft í sér krefjandi samskipti og aðstæður sem geta reynt á bæði fagmennsku og líðan. Í fræðslunni fá þátttakendur hagnýt verkfæri til að takast á við krefjandi aðstæður af öryggi, setja heilbrigð mörk og hlúa að eigin líðan og stuðningi innan teymisins.
Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að ræða raunverulegar aðstæður og leita lausna í öruggu rými.
Meðal efnis:
- Samskipti í framlínustörfum og leiðsagnarreglur
- Heilbrigð mörk og viðbrögð við óviðeigandi framkomu
- Ógn og áhættuþættir í starfi
- Streita, orkustjórnun og sjálfsumhyggja
- Jafningjastuðningur og stuðningur vinnustaðar
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Starfsfólk ✓ Stjórnendur
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams