Sálræn skyndihjálp – þekking og fyrstu viðbrögð
Öll göngum við í gegnum erfiða atburði og þá skiptir stuðningur samferðafólks málii.
Erfiðir atburðir gera ekki boð á undan sér, hvorki í vinnu né einkalífi. Í fræðslunni kynnist starfsfólk grunnatriðum sálrænnar skyndihjálpar og lærir hvernig hægt er að vera til staðar fyrir samstarfsfólk á erfiðum stundum. Þekkingin nýtist jafnt í starfi sem einkalífi.
Meðal efnis:
- Hvað er sálræn skyndihjálp?
- Fyrstu viðbrögð þegar samstarfsfólk gengur í gegnum erfiða atburði
- Hvað hjálpar – og hvað ber að varast
- Að hlúa að eigin líðan og þekkja eigin mörk
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams