Starfslokanámskeið – Tímamót og tækifæri

Að kveðja starfshlutverkið er stór breyting á lífsleiðinni. Góður undirbúningur gerir tímamótin að tilhlökkunarefni. 

Starfslok marka upphaf að æviskeiði sem býður upp á bæði breytingar og ný tækifæri. Starfslokanámskeið styður við farsæl og innihaldsrík starfslok og gefur vinnustaðnum færi á að þakka starfsfólki fyrir framlag þess.  

Á námskeiðinu er unnið með starfslokin frá öllum hliðum; heilsu, fjármál, hlutverk, tengsl og það sem gefur lífinu tilgang. Með fyrirlestrum, verkefnum og umræðum staldra þátttakendur við og meta eigin styrkleika, ræða breytingarnar við aðra í sömu stöðu og móta framtíðarsýn fyrir næsta kafla lífsins. 

Meðal efnis: 

 

  • Líkamleg og andleg heilsa; hreyfing, svefn og streitukerfið 
  • Réttindi við eftirlaunaaldur og fjármál við starfslok 
  • Ný og breytt hlutverk; félagsleg staða og tengsl 
  • Að setja hugsanir, þarfir og líðan í orð 

 

Hentar sérstaklega þegar: 

  • Starfsfólk nálgast eftirlaunaaldur  
  • Vinnustaðurinn vill móta heildstæða starfslokastefnu 
  • Vinnustaðurinn vill kveðja starfsfólk af virðingu og ábyrgð 

 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Starfsfólk   ✓ Mannauðsfólk 

1 eða 2 dagar · Staðfræðsla · Hámark 30 þátttakendur