Starfsdagur með Auðnast – sérsniðinn að ykkar þörfum
Vel heppnaður starfsdagur styrkir liðsheild og skapar sameiginlegan skilning á því sem skiptir máli.
Engir tveir vinnustaðir eru eins. Hver starfsdagur er því mótaður út frá markmiðum, áskorunum og menningu vinnustaðarins. Dagskráin sameinar fræðslu, vinnustofur, hópavinnu og umræður þannig að þátttakendur fari heim með aukinn skilning, hagnýt verkfæri og sameiginlega sýn sem nýtist í daglegu starfi.
Dæmi um viðfangsefni:
- Samskipti og vinnustaðamenning
- Styrkleikamiðuð teymisvinna
- Sálfélagslegt og sálrænt öryggi
- Streita, svefn og heilsuefling
- Leiðtogafærni
- Sérsniðin viðfangsefni eftir þörfum vinnustaðarins
Hentar sérstaklega þegar:
- Vinnustaðurinn vill efla samstarf og liðsheild
- Þörf er á sameiginlegri fræðslu og þátttöku
- Unnið er að breytingum, þróun eða nýjum markmiðum
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Stjórnendur ✓ Mannauðsfólk ✓ Starfsfólk
Sérsniðin dagskrá · Auðnast sér um skipulag og framkvæmd · Umfang eftir samkomulagi