FYRIRTÆKIÐ

Bólusetningar

Auðnast býður einstaklingum og fyrirtækjum upp á bólusetningar gegn inflúensu. Fyrir pantanir eða frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið sonja@audnast.is eða fylla út upplýsingar hér að neðan.

Nokkrar staðreyndir um Inflúensuna

-  Inflúensa gengur yfir norðurhvel jarðar frá október og fram í mars ár hvert
-  Frá því smit á sér stað er meðgöngutími tveir dagar áður en einkenni og veikindi hefjast
-  Einkenni inflúensu koma yfirleitt snögglega sem hár hiti, höfuð-, bein- og vöðvaverkir, þurr hósti og særindi í hálsi
-  Í flestum tilfellum er viðkomandi frá vinnu í rúma viku
-  Í kjölfar inflúensu aukast líkur á lungnabólgu og sýkingu í kinn- og ennisholum sem geta lengt veikindi enn frekar. Varnir geta auk þess veikst sem og úthald minnkað
-  Ef bólusett er árlega mörg ár í röð má búast við minni líkum á inflúensusmitum yfir ævina
-  Inflúensufaraldurinn hefur mikil áhrif á skóla- og atvinnulífið þar sem mikil aukning er á fjarvistum starfsfólks og nemanda
-  Í heilbrigðiskerfinu eykst álag á þessum tíma vegna fjölgunar í hópi þeirra sem þurfa á þjónustu að halda sem og fækkun á starfsfólki vegna veikinda
-  Bólusetning gefur 60-90% vörn gegn inflúensu

Hjúkrunarfræðingur eða læknir á vegum Auðnast mætir á vinnustaði og bólusetur þá starfsmenn sem þess óska.
Bólusetningar við inflúensu hefjast í september ár hvert. Þó skal hafa í huga að þar sem inflúensan getur verið óútreiknanleg svörum við því með sveigjanleika og hefjum bólusetningar í samræmi við það. Opnir tímar í bólusetningu verða auglýstir síðar.

Hafðu samband ef þú vilt panta bólusetningu