Innleiðing stefnu á vinnustað
Til þess að stefna skili árangri er mikilvægt að bæða fræða starfsfólk og þjálfa stjórnendur í réttum viðbrögðum. Auðnast hefur hannað verkferla sem eru til þess fallnir að færa skriflega stefnu í framkvæmd.
Dæmi um innleiðingu á vinnustað
- Mótun stefnu og innleiðing verkferla.
- Stjórnendaþjálfun um verkferla og rétt viðbrögð (2x 120 mín. / hámark 15 í hóp).
- Fræðsla til starfsmanna (60 mín / engar fjöldatakmarkanir).
- Eftirfylgni og aðgangur að verkefnisstjóra Auðnast í umsaminn tíma.
Innleiðing stefnu í skrefum
- Mótun stefnu og innleiðing verkferla. Getur líka verið endurmat á núverandi stefnu og verkferlum.
- Stjórnendaþjálfun þar sem meðal annars er fjallað um orsakir, einkenni og afleiðingar þess að einelti, ofbeldi eða áreitni þróist á vinnustað. Kenndar eru hagnýtar leiðir til að nýta verkferla á réttan hátt og læra rétt viðbrögð í flóknum aðstæðum. Gert er ráð fyrir tveimur skiptum og hámark 15 manns í hóp.
- Fræðsla til starfsmanna þar sem farið er yfir orsakir, einkenni og afleiðingar eineltis, ofbeldis og áreitnis. Fjallað um persónulega ábyrgð starfsmanns á vinnustað og mögulegar aðferðir til að sporna gegn áðurnefndum þáttum.
- Eftirfylgni og aðgangur að verkefnisstjóra Auðnast í umsaminn tíma.
Meðferð einstakra mála og handleiðsla
Starfsfólk Auðnast hefur sinnt þjónustu við einstök mál.
- Mat á núverandi aðstæðum og líðan á vinnustað. Spurningalistar, viðtöl við starfsfólk og greining á viðvarandi vanda. Tillögur að úrbótum og eftirfylgni.
- Handleiðsla og stuðningur við stjórnendur.
- Stuðningsviðtöl við málsaðila.