Til baka
Helena Katrín Hjaltadóttir · Vinnuvernd
Að skapa rými fyrir vöxt
Starfsdagar fyrirtækja og stofnana eru gagnlegt tæki ef vinna á að vexti, samvinnu og vellíðan starfsfólks. Það felur í sér að taka til hliðar dag þar sem starfsfólk einbeitir sér að faglegri þróun, uppbyggingu og samræmingu markmiða vinnustaðarins. Ávinningurinn er þó víðtækari því með því að gefa tíma í slíka vinnu, er hlúð að vinnumenningu og sálfélagslegu öryggi.
Að auka færni og þekkingu
Eitt af meginmarkmiðum starfsdaga er gjarnan að fjárfesta í faglegum vexti starfsfólks. Að bjóða upp á vinnustofur, fræðslu eða námskeið gerir starfsfólki kleift að læra nýja færni, hressa upp á þá færni sem það býr yfir og fylgjast með þróun innan síns sviðs. Að fjárfesta í þróun starfsfólks með þessum hætti, bætir ekki aðeins frammstöðu einstaklinga heldur stuðlar að aukinni framleiðni vinnustaðarins í heild og gefur starfsfólki þá tilfinningu að vinnustaðurinn meti framlag þeirra, slík upplifun ýtir undir hollustu starfsfólks.
Að styrkja liðsheild
Annar ávinningur starfsdaga er tækifæri til að styrkja tengsl milli starfsfólks. Með verkefnum og umræðu þar sem áhersla er lögð á samvinnu, gefst starfsfólki tækifæri til að vinna að auknu trausti og betri samskiptum, sem eru lykilatriði skilvirkrar teymisvinnu.
Að stuðla að sálfélagslegu öryggi
Þegar vel tekst til má álykta að dýrmætasti ávinningur af starfsdögum sé efling sálfélagslegs öryggis. Þegar vinnustaðir leggja áherslu á slíka vinnu er umhverfi skapað þar sem starfsfólk upplifir sig metið að verðleikum, það er hvatt til að deila upplifunum og ræða áskoranir. Unnið er að því að efla þá trú starfsfólks að það geti tjáð skoðanir og deilt hugmyndum án þess að vera dæmt. Þessi öryggistilfinning skiptir sköpum fyrir nýsköpun, þar sem starfsfólk sem telur sig vera sálfræðilega öruggt, er líklegra til að leggja fram skapandi hugmyndir, vekja máls á því sem það telur að betur megi fara og taka ábyrgð á mistökum. Allt eru þetta mikilvægir þættir fyrir persónulegan og faglegan vöxt. Þegar sálfræðilegt öryggi er til staðar er starfsfólk líklegra til að taka frumkvæði, sem hefur bein áhrif á heildarárangur vinnustaðar.
Langtímaávinningur
Til lengri tíma litið sjá vinnustaðir, sem fjárfesta í reglulegum starfsdögum, meiri ánægju starfsfólks og betri heildarframmistöðu. Starfsfólk sem upplifir stuðning, bæði í persónulegum vexti og sálrænu öryggi, er virkara og áhugasamara við að leggja sitt að mörkum til að vinna að markmiðum vinnustaðarins.
Vel skipulagður starfsdagur getur því haft margvíslegan ávinning, vinnur að eflingu einstaklingshæfni, betri liðsheild og stuðlar að menningu öryggis og trausts.
Helena Katrín Hjaltadóttir - Íris Helga Gígju Baldursdóttir
Höfundar eru sérfræðingar í vinnuvernd og starfa hjá Auðnast m.a. við undirbúning og utanumhald um starfsdaga fyrir vinnustaði.