Styðjum við stoðkerfið

Stoðkerfið ber okkur í gegnum vinnudaginn – hlúum að því. 

Stoðkerfisverkir eru meðal algengustu orsaka óþæginda og fjarvista frá vinnu. Í fræðslunni er farið yfir uppbyggingu hreyfi- og stoðkerfisins og hvernig fjölbreytt hreyfing, breytilegt álag og góð vinnuaðstaða styðja við heilbrigt stoðkerfi. 

Meðal efnis: 

  • Uppbygging hreyfi- og stoðkerfisins 
  • Algengar orsakir stoðkerfisverkja 
  • Leiðir til að fyrirbyggja stoðkerfisvandamál 
  • Hagnýt ráð fyrir daglegt líf og vinnu 

45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla