Máttur markmiða – markmiðasetning í daglegu lífi
Flest setjum við okkur markmið – færri gera áætlun um að ná þeim.
Árangursrík markmiðasetning byrjar ekki á markmiðinu sjálfu heldur á sjálfsþekkingu. Það skiptir máli að skilja hvað drífur okkur áfram og hvaða venjur móta hegðun okkar. Í fræðslunni kynnast þátttakendur gagnreyndum aðferðum við markmiðasetningu og fá hagnýt verkfæri til að greina eigin hindranir og vinna markvisst með þær. Fræðslan er gagnvirk og byggir á samtali og æfingum.
Meðal efnis:
- Sjálfsþekking og árangursrík markmiðasetning
- SMART -markmið og aðrar gagnreyndar aðferðir
- Venjur sem styðja við árangur
- Frestunarárátta, ótti við mistök og fullkomnunarárátta
45 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams