Karlheilsa

Besta forvörnin er þekking á eigin heilsu 

Farið er yfir hvernig lífsstíll, hormónabúskapur, næring og hreyfing hafa áhrif á heilsu og vellíðan karla. Einnig er fjallað um helstu forvarnir, algeng heilsufarsvandamál og hagnýt ráð til að efla bæði líkamlega og andlega heilsu. Markmiðið er að auka þekkingu og meðvitund um eigin heilsu og hvetja til heilsueflandi venja. 

Meðal efnis:  

  • Hormónabúskapur og breytingar með aldri 
  • Lífsstíll, næring og hreyfing sem styðja við góða heilsu 
  • Helstu forvarnir og algeng heilsufarsvandamál karla 
  • Geðheilsa, streita og hagnýt ráð til aukinna lífsgæða 

45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams