Grunnur að góðri geðheilsu

Góð geðheilsa er ekki sjálfgefin – hún er ræktuð. 

Góð geðheilsa felst ekki í því að líða alltaf vel heldur að búa yfir bjargráðum og sveigjanleika til að takast á við áskoranir lífsins. Í fræðslunni er farið yfir hvað styður við góða geðheilsu, hvernig streita og álag hafa áhrif á líðan og hagnýt verkfæri sem efla þrautseigju og sjálfsvitund. Að auki er fjallað um muninn á heilbrigðum og minna heilbrigðum bjargráðum.   

Meðal efnis: 

  • Hvað einkennir góða geðheilsu og hvað ekki? 
  • Áhrif streitu og álags á geðheilsu 
  • Bjargráð og þrautseigja í daglegu lífi 
  • Hagnýt verkfæri í daglegri geðrækt 

45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams