Svefn og svefnvenjur
Góður nætursvefn er ein mikilvægasta undirstaða endurheimtar.
Góðar svefnvenjur eru grunnforsenda heilsu og vellíðanar og hafa bein áhrif á orku, einbeitingu og frammistöðu yfir daginn. Í fræðslunni er farið yfir tengsl svefns og heildrænnar heilsu, hvað einkennir góðar svefnvenjur og algengar ástæður svefnvanda.
Meðal efnis:
- Hvað gerist í svefni?
- Hvers vegna skiptir góður svefn máli?
- Algengar ástæður svefnvanda
- Hollar svefnvenjur
Í kjölfar fræðslu er gjarnan sett upp svefnátak í samráði við vinnustaðinn.
60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams · Íslenska og enska