Samskipti og menning á vinnustað
Góð samskipti eru ósýnileg – þangað til þau bresta.
Samskipti hafa áhrif á bæði líðan fólks og upplifun þess af vinnustaðnum. Í fræðslunni er farið yfir hvað mótar samskipti á vinnustað og hvers vegna misskilningur og árekstrar geta komið upp, jafnvel þar sem samstarfið er gott. Einnig er fjallað um hvað einkennir heilbrigð samskipti, hvernig væntingar til samskipta á vinnustöðum hafa þróast og hvernig sameiginlegar leiðsagnarreglur geta stutt við góða vinnumenningu.
Meðal efnis:
- Hvers vegna verða samskipti áskorun?
- Hvað einkennir heilbrigð samskipti?
- Hvað hefur breyst í samskiptum á vinnustað?
- Hvernig byggjum við upp góða vinnumenningu?
Hentar sérstaklega fyrir: ✓ Starfsfólk ✓ Stjórnendur
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams