Streita - Stjórnendaþjálfun

Stjórnendur setja tóninn, líka þegar kemur að streitu 

Vinnustofan eflir stjórnendur á tveimur vígstöðvum: í eigin streitustjórnun og í stuðnings- og ábyrgðarhlutverki gagnvart starfsfólki. Þátttakendur öðlast sameiginlegan skilning á streitukerfinu og læra að styðja starfsfólk sem er að fást við langvarandi eða óhjálplega streitu. 

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur: 

  • Greint á milli vinnutengdrar og persónulegrar streitu 
  • Metið áhrif sálfélagslegra áhættuþátta á líðan starfsfólks 
  • Stutt starfsfólk og fylgt málum eftir á faglegan hátt 
  • Nýtt eigin bjargráð og orkugjafa til endurheimtar 

Hentar sérstaklega þegar: 

  • Stjórnendur upplifa mikið álag 
  • Vísbendingar eru um streitu á vinnustað 
  • Fylgja á eftir streitufræðslu fyrir starfsfólk 

 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Stjórnendur   ✓ Mannauðsfólk 

2 eða 3 klst. vinnustofa · Staðfræðsla