Grunnur stjórnandans - Hvernig innri viðbrögð móta daglega stjórnun
Sálrænt öryggi í teymi byrjar hjá stjórnanda
Vinnustofan beinir sjónum að innri undirstöðum stjórnandans: hvað mótar viðbrögð í starfi, hvernig styrkleikar og skuggahliðar birtast og hver munurinn er á fag- og persónusjálfinu. Þátttakendur skoða hvernig varnir birtast í krefjandi verkefnum og samskiptum og ljúka vinnustofunni með því að kortleggja eigin sóknartækifæri og fyrstu skref til vaxtar.
Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur:
- Fundið eigin rödd og ábyrgð í hlutverki stjórnanda
- Þekkt eigin styrkleika og skuggahliðar
- Kortlagt leiðir til vaxtar í stjórnendahlutverkinu
90 mín. vinnustofa · Staðfræðsla eða á Teams