Grunnur faglegra samtala

Samtöl eru eitt vandasamasta verkefni stjórnandans og jafnframt eitt það mikilvægasta 

Vinnustofan leggur faglegan grunn að eflandi og krefjandi samtölum. Þátttakendur læra að greina á milli þriggja laga; hegðunar, frammistöðu og sálfélagslegra þátta. Að auki fá þau þjálfun í að velja réttan fókus og halda fagmennsku í frammistöðusamtölum, daglegri endurgjöf og samtölum í erfiðum aðstæðum. 

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur: 

  • Greint ólíkar áherslur og faglega nálgun í samtölum 
  • Tekið eflandi og krefjandi samtöl af fagmennsku 
  • Nýtt leiðsagnarreglur í grunnsamtölum stjórnandans 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Stjórnendur   ✓ Mannauðsfólk 

90 mín. vinnustofa · Staðfræðsla eða á Teams