Breytingastjórnun

Fólk þarf ekki fullvissu í breytingum – það þarf trausta leiðsögn  

Breyting er ferli sem fólk fer í gegnum á ólíkum hraða. Í vinnustofunni er unnið með raunveruleg dæmi úr starfi þátttakenda og hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi. Jafnframt er hugað að stjórnandanum sjálfum og því hvernig viðhalda má skýrleika, jafnvægi og úthaldi þegar breytingar reyna á.  
 

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur: 

  • Greint hvar einstaklingar og teymi eru stödd í breytingaferlinu. 
  • Skilið ástæður mótstöðu og brugðist við í samræmi við það. 
  • Beitt hagnýtum verkfærum til að leiða breytingar af öryggi og festu. 
  • Gætt að eigin líðan og úthaldi í stjórnendahlutverkinu. 

 

Hentar sérstaklega þegar: 

  • Skipulagsbreytingar, sameiningar eða annars konar breytingar eru framundan eða standa yfir á vinnustaðnum. 
  • Mæta þarf mótstöðu eða breytingaþreytu. 
  • Vinnustaðir vilja efla færni stjórnenda til að leiða breytingar.  

 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Stjórnendur   ✓ Mannauðsfólk 

90 mín. vinnustofa · Staðfræðsla eða á Teams