Allt er breytingum háð

Breytingar eru óumflýjanlegar – en við getum haft áhrif á hvernig við mætum þeim. 

Breytingar á vinnustað reyna á bæði einstaklinga og teymi. Í fræðslunni er farið yfir hvað gerist þegar breytingar eiga sér stað, hvers vegna ólík viðbrögð eru eðlileg og hvaða þættir styðja við farsæla aðlögun. Jafnframt er lögð áhersla á hagnýt verkfæri sem draga úr óvissu og styðja við fólk í gegnum breytingar.  

Meðal efnis: 

  • Algeng viðbrögð við breytingum hjá einstaklingum og teymum 
  • Streituþættir og áskoranir í breytingaferlum 
  • Leiðsagnarreglur sem styðja farsælar breytingar 
  • Verndandi þættir og hagnýt verkfæri 

Fræðslan getur einnig verið í formi handleiðslu fyrir teymi eða starfshóp þar sem breyting er fyrirhuguð eða gengin í garð. 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Starfsfólk   ✓ Stjórnendur 

45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams