Samskiptasáttmáli

Skýr rammi um samskipti bætir líðan, eykur öryggi og dregur úr líkum á EKKO málum. 

Samskiptasáttmáli er samkomulag starfsfólks um hvernig það vill eiga samskipti og vinna saman. Með fagfólki Auðnast fer hópurinn í gegnum markvisst ferli þar sem skapast rými fyrir ólík sjónarmið og sameiginlega sýn. Þannig verður sáttmálinn lifandi, sameiginlegt verkfæri fremur en skjal sem endar ofan í skúffu. 

Ferlið í stuttu máli: 

  • Kynning og undirbúningur 
  • Vinnustofa með starfsfólki 
  • Úrvinnsla og gerð samskiptasáttmála 
  • Kynning á niðurstöðum og eftirfylgni 

Hentar sérstaklega þegar: 

  • Samskiptavandi hefur komið upp 
  • Endurheimta þarf traust 
  • Nýtt teymi verður til eða vinnustaðir sameinast 
  • Vinnustaðurinn vill móta sameiginleg viðmið áður en vandi kemur upp 

Hentar sérstaklega fyrir:  ✓ Stjórnendur   ✓ Mannauðsfólk   ✓ Starfsfólk 

Vinnustofa í fjórum skrefum · Sérsniðið að hverjum vinnustað · Umfang eftir samkomulagi