EKKO – áhorfendaáhrif
Viðbrögð samstarfsfólks geta ráðið miklu þegar óviðeigandi hegðun á sér stað.
Framhaldsfræðsla fyrir starfsfólk sem hefur lokið EKKO grunnfræðslu. Í fræðslunni kynnist starfsfólk áhorfendaáhrifum (bystander effect) og öðlast hagnýta færni í að grípa inn í þegar það verður vitni að óviðeigandi hegðun á vinnustaðnum. Raundæmi og æfingar hjálpa þátttakendum að bregðast við á uppbyggilegan og öruggan hátt.
Meðal efnis:
- Áhorfendaáhrif (bystander effect) og hvernig þau móta hegðun
- Hvers vegna fólk grípur ekki alltaf inn í
- Hlutverk samstarfsfólks við að fyrirbyggja EKKO
- Hagnýt fyrstu viðbrögð þegar óviðeigandi hegðun á sér stað
- Raundæmi og æfingar
45–60 mín. fræðsluerindi · Staðfræðsla eða á Teams · Íslenska og enska