
Fræðsla
Vinnustaðir ná bestum árangri þegar fólk fær tækifæri til að vaxa í starfi.
Þess vegna eru fræðsluleiðir Auðnast hagnýtar og aðlagaðar að hverjum vinnustað. Sumir vinnustaðir velja eitt erindi en aðrir byggja upp markvissa fræðsluáætlun yfir lengri tíma sem eflir leiðtogafærni stjórnenda, styrkir vinnumenningu og stuðlar að betri heilsu og auknu öryggi. Hvort sem um er að ræða staka fræðslu eða langtímasamstarf er markmið okkar alltaf það sama: að fræðslan skili sér í betri vinnubrögðum og sterkari vinnustað.
- Hægt er að velja um fræðsluerindi, vinnustofur, örfræðslur og aðrar lausnir sem henta þörfum vinnustaðarins - í staðfræðslu, á Teams eða sem upptaka. Flest erindi eru í boði á íslensku og ensku.
- Öll námskeið eru aðlöguð að starfsemi, áskorunum og markmiðum hvers vinnustaðar.
- Fræðsla og þjálfun Auðnast byggist á viðurkenndum alþjóðlegum leiðbeiningum um heilsu og öryggi á vinnustöðum, þar á meðal ISO 45003 um sálfélagslegt öryggi.
Kjölfesta Auðnast
Veistu ekki hvar á að byrja? Byrjaðu á Kjölfestu. Þar eru þær fræðslur og vinnustofur sem leggja grunn að heilbrigðu, öruggu og árangursríku starfsumhverfi.
Fræðsla í boði
Kjölfesta Stjórnendaþjálfun
Grunnur stjórnandans - Hvernig innri viðbrögð móta daglega stjórnun
Kjölfesta EKKOStjórnendaþjálfun
EKKO stjórnendaþjálfun – þekking og fyrstu viðbrögð
Kjölfesta Stjórnendaþjálfun
Sálræn skyndihjálp fyrir stjórnendur á viðkvæmum tímum
Vinnumenning og samskipti
Framlínustörf – krefjandi samskipti og eigin heilsa
Kjölfesta Streita og endurheimt Stjórnendaþjálfun